Kvennaráðgjöfin

Member Area
Ef ég skil við manninn minn áður en ég fæ búsetuleyfi, má ég þá ekki vera lengur á Íslandi? Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Jú, þú mátt vera lengur á Íslandi. Hvað þú þarft að gera til að vera áfram á landinu fer eftir því hvaðan þú ert. Ef þú ert ekki EES-borgari og hefur verið gift Íslendingi, þá þarftu að fá þér vinnu, eða, ef þú hefur vinnu, að biðja vinnuveitanda þinn að sækja um atvinnuleyfi fyrir þig og sækja um nýtt dvalarleyfi. Ef þú varst gift ríkisborgara annars ríkis, þá þarftu að fá vinnu og vinnuveitandinn sækir um atvinnuleyfi. Ef þú ert með vinnu hefur þú hvort sem er atvinnuleyfi og þá er bara að fá aðra tegund dvalarleyfis, þ.e. ekki dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar (e-leyfi).

Ef þú ert EES-borgari, þá þarftu bara að sýna fram á að þú hafir nægt fé þér til framfærslu og þá máttu vera áfram á Íslandi. Framfærsla frá Félagsþjónustunni gæti haft áhrif framlengingu dvalarleyfis.
 

Sími 552-1500

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size